28.01.2012 10:18:17 / fram5flokkur
Hæ,
Ég mun fara til Englands á mánudagsmorgun og verð í rúma viku á þjálfaranámskeiði í Reading.
Þar mun ég taka UEFA A gráðuna (KSÍ A) sem er næst hæsta gráða sem evrópska knattspyrnusambandið hefur upp á að bjóða, að því að ég best veit.
Kem aftur til æfinga miðvikudaginn 8. febrúar.
Þangað til mun mikið mæða á Villa og mun hann ásamt öðrum þjálfurum sjá um að vera með æfingar í minni fjarveru.
Verið áfram duglegir að mæta á æfingar strákar. Áfram er merkt við hverja einustu æfingu.
Veturinn hefur verið erfiður veðurfarslega fyrir okkur og önnur félög.
Verðum að mæta vel á æfingar og taka á því.
Sjáumst hressir.
Kveðja,
Dóri þjálfi
»
28.01.2012 10:13:45 / fram5flokkur
Hæ strákar,
Í febrúar hefst Reykjavíkurmótið utandyra hjá okkur.
Líklegt er að fyrsti leikur okkar verði 11. febrúar.
Við sendum 5 lið til keppni; A, B, C1 og C2 og D lið.
Sjá drög að leikjadagskrá inn á
www.ksi.is Kveðja,
Þjálfarar
»
26.01.2012 22:18:44 / fram5flokkur
Ágætu foreldrar/forráðamenn.
Vakin er athygli á því að búið er að opna fyrir skráningu árið 2012 í hinu nýja skráningar- og greiðslukerfi Fram á netinu.
Þeir sem hafa ekki þegar gengið frá greiðslu æfingagjalda 2012 eru vinsamlegast beðnir um að ganga frá greiðslu á netinu.
Eins og áður verður hægt að greiða með kreditkorti. Hægt verður að skipta gjaldinu í allt að 6 greiðslur. Einnig geta þeir sem eru með lögheimili í Reykjavík áfram greitt með frístundakorti Reykjavíkur. Frístundastyrkurinn fyrir árið 2012 er kr. 25.000-.Þeir sem vilja greiða með peningum eru beðnir um að hafa samband við skrifstofur Fram í Safamýri eða Grafarholti.
Ekki verða lengur sendir út greiðsluseðlar.
Veittur er systkinaafsláttur, þannig að elsta barn greiðir fullt gjald en yngra fær 20% afslátt. Afslátturinn reiknast í kerfinu og reiknast 10% af hvoru gjaldi þegar greitt er fyrir seinna barnið.
Hægt er að sækja um æfingastyrk FRAM sem er endurgreiðsla til þeirra iðkenda sem stunda fleiri en eina íþróttagrein yfir árið. Sjá upplýsingar um æfingastyrk á heimasíðu Fram.
Samkvæmt reglum knattspyrnudeildar Fram er börnum með ógreidd æfingagjöld ekki heimilt að taka þátt í mótum.
Aldur/Flokkur |
Árgjald 2012 |
Vor og Sumargjald 2012 |
Vorgjald 2012 |
Sumargjald 2012 |
Haust 2012 |
3. flokkur f. 96 og 97 |
59.000.- |
44.000.- |
21.000.- |
28.000.- |
15.000.- |
4. flokkur f. 98 og 99 |
59.000.- |
44.000.- |
21.000.- |
28.000.- |
15.000.- |
5. flokkur f. 00 og 01 |
53.000.- |
40.000.- |
20.000.- |
25.000.- |
13.000.- |
6. flokkur f. 02 og 03 |
48.000.- |
35.000.- |
18.000.- |
22.000.- |
13.000.- |
7. flokkur f. 04 og 05 |
42.000.- |
30.000.- |
15.000.- |
20.000.- |
12.000.- |
8. flokkur f. 06 > |
25.000.- |
20.000.- |
12.500.- |
12.500.- |
5.000.- |
Nánari upplýsingar veita:
Þór Björnsson, íþróttastjóri 533 5600, toti@fram.is
Daði Guðmundsson, íþróttafulltrúi í Grafarholti 587-8800, adi@fram.is" target="_blank">dadi@fram.is
»
24.01.2012 22:37:25 / fram5flokkur
Hæ,
Á morgun, miðvikudag er bíóferðin okkar fræga, sjá upplýsingar hér að neðan.
Það verða engar æfingar hjá okkur á morgun miðvikudag.
Þetta félagslega verkefni verður það sem við gerum á morgun.
Verið samt duglegir strákar að hreyfa ykkur eins mikið og þið getið.
Við ætlum að fara á myndina The Muppets í Kringlubíó næsta miðvikudag og hefst myndin kl. 17:50 (mæta a.m.k. 15 mín. fyrr).
Það kostar kr. 1.100 miðinn + lítill popp og kók.
Hafa peninginn með sér og borga fyrir myndina.
Þessi félagslegu verkefni sem við sendum eru að sjálfsögðu valfrjáls, en við hvetjum alla til að mæta og þétta hópinn.
Við þurfum að vera félagar og sýna samstöðu.
Í þessum flokki er einelti og stríðni ekki liðin undir nokkrum kringumstæðum.
Stöndum saman og verum góðir hver við annan!
Kveðja,
Dóri og Villi
»
24.01.2012 11:39:58 / fram5flokkur
Góðan dag
Þar sem vellirnir eru ófærir verður engin æfing í dag.
Félögin allt í kringum okkur eru að lenda í sömu vandræðum vegna tíðarfarsins.
Minnum á bíóferðina á morgun - sjá frétt hér að neðan.
Þjálfarar
»
21.01.2012 20:30:37 / fram5flokkur
Hæ strákar
Eins og við vorum búin að senda út fyrir áramót í dagskrá fyrir það félagslega sem við gerum fyrir utan fótboltann förum við að fara í bíó!
Við ætlum að fara á myndina The Muppets í Kringlubíó næsta miðvikudag og hefst myndin kl. 17:50 (mæta a.m.k. 15 mín. fyrr).
Það kostar kr. 1.100 miðinn + lítill popp og kók.
Hafa peninginn með sér og borga fyrir myndina.
Þessi félagslegu verkefni sem við sendum eru að sjálfsögðu valfrjáls, en við hvetjum alla til að mæta og þétta hópinn.
Við þurfum að vera félagar og sýna samstöðu.
Í þessum flokki er einelti og stríðni ekki liðin undir nokkrum kringumstæðum.
Stöndum saman og verum góðir hver við annan!
Ekkert stress, verum hress, bless 
Kveðja,
Villi og Dóri
»
20.01.2012 14:12:46 / fram5flokkur
Hæ strákar
Mætum hressir á æfingu í dag kl. 16 í Safamýri.
Vel klæddir og höfum líf og fjör.
Kveðja,
Þjálfarar
»
18.01.2012 13:36:56 / fram5flokkur
Hæ strákar
Það verða æfingar í dag, kl. 15 í Safamýri og kl. 16 í Úlfarsárdal.
Mætum vel klæddir og hressir!
Kveðja,
Þjálfarar
»
13.01.2012 14:43:59 / fram5flokkur
Hæ
Mætum hressir í Safamýrina á eftir kl. 16.
Kveðja,
Þjálfarar
»
11.01.2012 12:00:38 / fram5flokkur
Sælir drengir
Það verða æfingar í dag kl. 15 í Safamýri og kl. 16 í Úlfarsárdal.
Mætum hressir!
Kveðja,
Þjálfarar
»
10.01.2012 13:23:08 / fram5flokkur
Engin æfing í dag þar sem völlurinn er ófær.
Látið þetta berast og fylgist vel með blogginu á morgun.
Villi og Dóri
»
08.01.2012 21:52:27 / fram5flokkur
Sælir drengir
Nú þegar við erum að koma öllu á fullt aftur er mikilvægt að við munum ákveðin atriði:
- Það er mjög mikilvægt að mæta vel á æfingar yfir vetrartímann. Allt sem við gerum vel í vetur tökum við með okkur inn í sumarið og við græðum á því með betri frammistöðu
- Við verðum að mæta jákvæðir á æfingar og í góðu skapi. Knattspyrnan er hópíþrótt og mjög miklu skiptir að við séum félagar og sýnum samstöðu. Við þurfum að hegða okkur vel á æfingum og fara eftir því sem við þjálfararnir erum að segja.
- Áfram verður fylgst nákvæmlega með mætingum ykkar á æfingar og við munum birta lista yfir mætingar fyrir janúar í byrjun febrúar á blogginu. Mætum alltaf á æfingar strákar!
- Þið og foreldrar ykkar þurfið að fylgjast vel með fréttum hér á blogginu. Næstu þrjá mánuði sérstaklega geta komið upp dagar þar sem veður er það slæmt að ekki er hægt að æfa. Við setjum það á bloggið eins fljótt og hægt er - helst 2 klukkutímum fyrir.
Við munum líka birta á næstunni niðurstöður úr knattþrautunum sem við vorum með í desember.
Verum jákvæðir, hressir og bjartsýnir strákar

Villi og Dóri
»
05.01.2012 22:05:05 / fram5flokkur
Góða kvöldið
Eftir gott jólafrí hefjum við æfingar aftur á morgun kl. 16 í Safamýri.
Eftir helgi verða æfingar skv. æfingatöflu.
Á mánudaginn er æfing kl. 16 í Safamýri og kl. 18 í Úlfarsárdal.
Kveðja,
Þjálfarar
»
03.01.2012 16:18:29 / fram5flokkur
Góðan dag
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
Við hefjum æfingar að nýju föstudaginn 6. janúar með æfingu í Safamýri kl. 16:00.
Fylgist aftur vel með blogginu og verum tilbúnir í fjörið framundan

Kveðja,
Þjálfarar
»
21.12.2011 22:29:53 / fram5flokkur
Óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Fyrsta æfing eftir áramót er föstudaginn 6. janúar.
Gleðileg jól
Kveðja,
Þjálfarar
»
Síður:
1 2 3 ...
15